Færeysk-íslenska viðskiptaráðið – Samþykktir

SAMÞYKKTIR
FÆREYSK-ÍSLENSKA VIÐSKIPTARÁÐSINS

1. grein
Nafn félagsins og aðsetur

Nafn félagsins er "Færeysk-íslenska viðskiptaráðið". Félagið hefur aðsetur á skrifstofu Viðskiptaráðs Íslands í Reykjavík.

2. grein
Tilgangur og verkefni

Tilgangur félagsins er að efla viðskipti og efnahagssamvinnu landanna. Félagið mun leitast við að starfa með þeim félögum á Íslandi og í Færeyjum, sem vinna að hliðstæðum verkefnum. Til að stuðla að þessum markmiðum mun félagið, eftir efnum og ástæðum, standa fyrir fræðslufundum og rástefnum og veita upplýsingar um atvinnulíf, fjárfestingarmöguleika og viðskiptamöguleika í Færeyjum og á Íslandi.  Fréttabréf um starfsemina skal koma út að lágmarki tvisvar á ári.

Félagið mun jafnframt leitast við að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum á Íslandi og í Færeyjum.

3. grein
Félagar

Félagar geta orðið einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir á Íslandi eða í Færeyjum, sem stuðla vilja að markmiðum félagsins. Hver félagi hefur eitt atkvæði á fundum félagsins. Atkvæðisréttur fellur niður hafi félagsgjöld ekki verið greidd. Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og miðast við upphaf næsta fjárhagsárs. Stjórnin getu vikið félögum úr félaginu vinni þeir gegn tilgangi þess.

Aðalfundur getur kosið heiðursfélaga, sem tilnefndur hefur verið af stjórn félagsins. Heiðursfélagi hefur seturétt á fundnum félagsins en ekki atkvæðisrétt.

4. grein
Fjármál

Starfsemi félagsins er fjármögnuð með félagsgjöldum, sem ákveðin eru af aðalfundi að fenginni tillögu stjórnar, svo og annarri starfsemi sem fram fer á vegum félagsins.  Aðalfundur velur úr sínum hópi tvo endurskoðendur til að fara yfir og árita reikninga félagsins.  Fjárhagsár félagsins er frá 1.apríl til 31.mars.

5.grein
Stjórn

Stjórn félagsins skipa mest 10 menn, kosnir á aðalfundi. Fimm fulltrúar skulu búsettir á Íslandi og fimm fulltrúar búsettir í Færeyjum. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega og skal annar koma frá Færeyjum og hinn frá Íslandi. Stjórnin skal tilnefna framkvæmdastjóra sem ber ábyrgð á daglegum störfum ráðsins.

6. grein
Stjórnarfundir

Formaður og varaformaður í forföllum  hans boða til stjórnarfunda.  Stjórnarfundir eru lögmætir ef löglega hefur verið boðað til þeirra  og minnst fjórir stjórnarmenn eru mættir.  Falli atkvæði jafnt hefur formaður eða varaformaður í hans forföllum úrslitavald.

7. grein
Skuldbindingar

Formaður ráðsins og framkvæmdastjóri hafa rétt til að skuldbinda félagið.

8. grein
Aðalfundur

Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok október á ári hverju.  Senda skal boð um aðlafund með minnst tveggja vikna fyrirvara og þá með dagskrá.  Eftirfarandi atriði skulu vera á dagskrá:

  1. Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Ársreikningar
  4. Lagabreytingar
  5. Kosning stjórnar a. formanns b. annarra stjórnarmanna sbr. 5. gr.
  6. Kosning tveggja endurskoðenda
  7. Ákvörðun um félagsgjöld
  8. Önnur mál

9. grein
Félagsfundir

Almenna fundi félagsins skal boða skriflega með hæfilegum fyrirvara.

10. grein
Breytingar á samþykktum

Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi.  Tillögur um lagabreytingar skal leggja fyrir stjórn a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund.  Allar tillögur um breytingar á lögum félagsins skulu fylgja aðalfundarboði undirritaðar af flutningsmanni/-mönnum.  Sama gildir um tillögur um slit á félaginu.  Ákvörðun um lagabreytingar eða slit félagsins skal tekin af 2/3 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi.  Sé tekin ákvörðun um slit félagsins skulu eignir sem gætu verið til  ráðstöfunar renna til félaga eða stofnana sem hafa það verkefni að efla viðskiptatengsl Íslands og Færeyja

Samþykktir þessar voru samþykktar á stofnfundi ráðsins þann 10.11.2012 í Þórshöfn í Færeyjum.